

|
Rétt þykir að benda á að það eru aðrir umhverfisþættir sem geta haft neikvæð áhrif á loftgæði innandyra. Það eru neikvæð tengsl á milli raka í húsnæði og heilsu. Ef grunur leikur á að myglusveppir vaxi í húsnæði er mikilvægast að finna upptök raka og ástæðu fyrir því að þeir nái að vaxa. Myglusveppir geta ekki vaxið nema þar sem raki er til staðar. Raki getur myndast til dæmis þar sem húsnæði lekur, lagnir hafa rofnað, einangrun er ábótavant eða þar sem loftflæði er lítið. Afar brýnt er að bregðast fljótt og örugglega við ef vatnstjón á sér stað og koma í veg fyrir að byggingarefni séu blaut. Gró myglusveppa eru alls staðar loftborin. Myglusveppir verða ekki vandamál innandyra nema þar sem raki er óeðlilega mikill í lofti eða í byggingarefnum og gróin vaxa upp og mynda myglu. Einkenni sem geta komið fram eru talin upp hér.. Athuga þarf að þessi einkenni eru sjaldnast ofnæmi í þeim skilningi að þau séu mælanleg með gildi IGg. Samkvæmt finnskri rannsókn kemur það fram að IGg mótefnamæling er ekki kennimerki um hvort einstaklingur hafi viðveru í húsnæði þar sem raki er óeðlilega mikill. Það eru afar fáir sem mælast með ofnæmi fyrir myglusveppum, sömu einstaklingar geta samt sýnt einkenni sem eru talin upp hér að ofan. Það er aldrei æskilegt að búa myglusveppum eða öðrum örverum í haginn innandyra og því er afar brýnt að almenningur sé meðvitaður um það hvernig eigi að fyrirbyggja vöxt myglusveppa. Íbúar þurfa að vera meðvitaðir um eftirfarandi: · Stöðva allan leka sem allra fyrst. · Þurrka strax eða fjarlægja byggingarefni sem hafa blotnað við leka eða vatnstjón. · Loftraki innandyra er æskilegur 30-55%, má ekki fara yfir 60%. · Loftflæði þarf að vera stöðugt og loftskipti regluleg. Opna glugga reglulega og nota eldhúsviftur eða aðrar viftur sem soga loftið út. · Þurrkari (sem er ekki með rakaþétti) skal ávallt blása út úr húsnæði. · Fylgjast þarf sérstaklega með gluggum þar sem rúðurnar ,,gráta” . · Mikilvægt er að fylgjast vel með fúgu og þéttiefnum í baðherbergjum.
Leviticus 14:39-47—biblían sem söguleg heimild um myglu—skoðið krækju If the mildew reappears in the house after the stones have been torn out and the house scraped and plastered, the priest is to go and examine it and, if the mildew has spread in the house, it is a destructive mildew; the house is unclean. It must be torn down-its stones, timbers and all the plaster-and taken out of the town to an unclean place (Vayikra / Leviticus 14:43-45).
Hérna eru fréttir frá Finnlandi um myglusveppi:
Tilgangur síðunnar er ekki að veita læknisfræðilega ráðgjöf heldur kynna nýjustu rannsóknir og vísindi sem tengjast raka í hýbýlum, myglusveppum og eiturefnum sem þeir framleiða. Einstaklingum sem finna til einkenna sem getið er á þessari síðu er ráðlagt að leita til læknis. Hús & heilsa býður upp á þjónustu við sýnatöku og úrvinnslu á niðurstöðum úr sýnatöku, leiðbeiningar um hreinsun og aðrar nauðsynlegar aðgerðir sem þarf að fylgja ef það er myglusveppur í híbýlum þínum. Allar upplýsingar sem eru birtar á þessari síðu eru studdar af heimildum og rannsóknum og er vísað til þeirra ef þörf krefur. Einnig eru tilvísanir í rannsóknir á síðunni um rannsóknir og krækjur og síðunni, heilsa. Ef frekari heimilda er óskað hafðu samband við hh@husogheilsa.is
|

|
Hægt er að panta tíma í síma 6950525 á milli kl 9-17 á daginn. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið hh@husogheilsa.is ÞJÓNUSTA—rakamæling og ástand húsnæðis metið sjónrænt– RÁÐGJÖF · Skoðun á húsnæði fyrir kaup eða sölu. · Skoðun á húsnæði fyrir íbúðareigendur, leigjendur, leigusala. · Skoðun á fyrirtækjum og/eða vinnustöðum. Hús og heilsa er ráðgjafafyrirtæki og framkvæmir meðal annars rannsóknir á húsnæði vegna gruns um myglu. Starfsfólk Húss og heilsu hefur skoðað yfir 500 byggingar á Íslandi með tilliti til raka og myglu, bæði vinnustaði og heimili. Við höfum unnið sem ráðgjafar samhliða vertökum, iðnaðarmönnum, tryggingafélögum og atvinnurekendum þar sem megin markmiðið er að fjarlægja myglu og í framhaldi að koma í veg fyrir þær aðstæður þar sem mygla getur vaxið innandyra með fyrirhyggju. Hús og heilsa veitir þá þjónustu að skoða húsnæði með tilliti til raka og myglusveppa. Þar sem raki nær að liggja fyrir eru miklar líkur á að mygla vaxi upp. Ákveðin svæði í húsnæði eru skoðuð með tilliti til raka og leka og athugað hvort að myglusveppir fyrirfinnist. Rakamæling er framkvæmd í byggingarefnum með 3 mismunandi rakamælum, myndataka með IR myndavél þar sem við á (skoða leka/raka/kuldabrú innan í veggjum með IR myndavél). Skoðun miðast við að reynt er að finna orsök myglusveppavaxtar. Almenn ráðgjöf fylgir hverri heimsókn um hreinsun á myglu. Mikilvægt er að taka það fram að loftrakamælir getur ekki staðfest um tilvist raka né myglu í byggingarefnum. Einnig er hægt að óska eftir sértækri ráðgjöf þar sem tekið er tillit til aðstæðna hverju sinni og þeirra sem dvelja í húsnæðinu við hreinsun. Þar sem rakavandmál eða leki er í húsnæði eru yfirgnæfandi líkur á að rakasæknar lífverur vaxi upp innan 48 klukkustunda. Einnig ber að nefna að mygla getur ekki vaxið nema þar sem er raki. Það fer síðan eftir aðstæðum hverju sinni hversu mikil mygla nær að vaxa og hversu einfalt er að leysa vandamálið. Ef þörf er á sýnatöku er sýnataka framkvæmd af líffræðingi og sýni greind á viðurkenndum rannsóknarstofum. Sýnatöku þarf einungis að framkvæma þar sem vafi leikur á hvort að um myglu sé að ræða eða til þess að sannreyna að ástand sé óeðlilegt þannig að mygla nái að vaxa innandyra. Þar sem raki er óeðlilegur og æti til staðar má jafnan gera ráð fyrir vexti myglusveppa. Mikilvægast er að fá ráðgjöf um hvernig eigi að bregðast við í hverju tilfelli. Einnig er hægt að panta úttekt á húsnæði eingöngu með tilliti til raka. Í hverri heimsókn er einnig bent á atriði sem mega betur fara til þess að auka loftgæði innandyra. Einnig er farið yfir þau atriði sem má laga til þess að minnka líkur á einkennum vegna astma. Starfsfólk húss & heilsu er bundið trúnaði við viðskiptavini sína. · 16. júlí 2009 YFIRLÝSING FRÁ WHO(Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni) -um neikvæð tengsl á milli raka og heilsu. · Ráðstefna í Syracuse: HEALTHY BUILDINGS 2009 http://www.hb2009.org/ - starfsfólk h&h mætti á þessa ráðstefnu. · Yfirlýsing frá American Academy of Environmental Medicine júní 2008 Molds and Mycotoxins (Toxic Molds) in Human Health
|

|
|