


|
Peningar og pólítík eiga stóran þátt í því að rannsóknir sem sýna fram á hið gagnstæða um áhrif myglusveppa eiturs og annarra lífrænna eiturefna eru birtar og vel kynntar í fjölmiðlum. Þetta er spurning um mikinn kostnað hins opinbera og margra fyrirtækja ef að það sannast að starfsmenn eða skólabörn séu veik vegna lélegs húsnæðis og ónógs viðhalds. Þessar viðgerðir eru oft á tíðum afar kostnaðarsamar. Í öðrum tilfellum er um að ræða tjón sem er tryggingaskylt og því miklir hagsmunir í húfi fyrir tryggingafélög, sérstaklega í USA þar sem kröfur eru oft himinháar. Það er hagkvæmara að finna aðra ástæðu en lífræn eiturefni. Bresk rannsókn sem sýnir fram á að húsasótt sé orsök lélegs vinnumórals og hefur einkum verið haldið á lofti um allan heim til að sýna fram á að þetta sé ekki rétt er gott dæmi um rannsóknaraðferðir og markaðssetningu niðurstöðunnar. Í þessari rannsókn voru hvorki tekin sýni í húsnæði né blóðsýni, allt sem fram kemur í rannsókninni er huglægt mat starfsmanna. Ástand húsnæðis var skráð niður eftir tilfinningu starfsmanna. Að sjálfsögðu getur verið rétt að stress, álag og miklar kröfur hafi áhrif á vinnumóral og heilsu starfsmanna. En þessi rannsókn sýnir á engan hátt fram á að húsasótt sé ekki afleiðing lélegra loftskipta, raka eða annars. Til þess þarf að taka sýni í húsnæði og blóðsýni úr starfsmönnum, mælanleg gögn. |
|
Það tekur oft mjög langan tíma áður en að læknasamfélagið tileinkar sér niðurstöður rannsókna. Í mörgum tilfellum tekur það mörg ár. Það tók til dæmis mörg ár að viðurkenna heilsuspillandi áhrif tóbaks. Enda er okkur öllum nauðsynlegt að góður grunnur og reynsla sé fyrir hendi áður en að vísindasamfélagið samþykkir eða viðurkennir niðurstöður rannsókna. Fjölmargir læknar hafa tileinkað sér þessar rannsóknir um allan heim. Þar sem þessi áhrif eru víðtæk og flókin getur liðið langur tími áður en að áhrifin verði fullljós. Ennþá eru þessar rannsóknir á frumstigi. Það sem einkum vefst fyrir vísindamönnum er að finna einhver viðmiðunarmörk eða mælanleg áhrif þessara lífrænu eiturefna á líkamann við innöndun. Síðan þessi heimasíða var opnuð í byrjun árs 2006 hafa orðið miklar breytingar á vitneskju og meðvitund almennings og starfsmanna í heilbrigðiskerfinu um mikilvægi heilnæms innilofts í híbýlum. Það eru nú þegar margir læknar á Íslandi sem hafa kynnt sér þessi mál. |
|
Afhverju þekkja ekki allir læknar þessi tengsl á milli raka í húsnæði og heilsufarseinkenna? |
|
Afhverju eru að birtast greinar sem sýna fram á að þessi áhrif eigi sér ekki stað? |
|
Sími: 695-0525 E-mail: hh@husogheilsa.is |