
|
Samantekt |
|
Sími: 695-0525 E-mail: hh@husogheilsa.is |
|
Rétt þykir að benda á að það eru aðrir umhverfisþættir sem geta haft neikvæð áhrif á loftgæði innandyra. Það eru neikvæð tengsl á milli raka í húsnæði og heilsu. Ef grunur leikur á að myglusveppir vaxi í húsnæði er mikilvægast að finna upptök raka og ástæðu fyrir því að þeir nái að vaxa. Myglusveppir geta ekki vaxið nema þar sem raki er til staðar. Raki getur myndast til dæmis þar sem húsnæði lekur, lagnir hafa rofnað, einangrun er ábótavant eða þar sem loftflæði er lítið. Afar brýnt er að bregðast fljótt og örugglega við ef vatnstjón á sér stað og koma í veg fyrir að byggingarefni séu blaut. Gró myglusveppa eru alls staðar loftborin. Myglusveppir verða ekki vandamál innandyra nema þar sem raki er óeðlilega mikill í lofti eða í byggingarefnum og gróin vaxa upp og mynda myglu. Einkenni sem geta komið fram eru talin upp hér.. Athuga þarf að þessi einkenni eru sjaldnast ofnæmi í þeim skilningi að þau séu mælanleg með gildi IGg. Samkvæmt finnskri rannsókn kemur það fram að IGg mótefnamæling er ekki kennimerki um hvort einstaklingur hafi viðveru í húsnæði þar sem raki er óeðlilega mikill. Það eru afar fáir sem mælast með ofnæmi fyrir myglusveppum, sömu einstaklingar geta samt sýnt einkenni sem eru talin upp hér að ofan. Það er aldrei æskilegt að búa myglusveppum eða öðrum örverum í haginn innandyra og því er afar brýnt að almenningur sé meðvitaður um það hvernig eigi að fyrirbyggja vöxt myglusveppa. Íbúar þurfa að vera meðvitaðir um eftirfarandi: · Stöðva allan leka sem allra fyrst. · Þurrka strax eða fjarlægja byggingarefni sem hafa blotnað við leka eða vatnstjón. · Loftraki innandyra er æskilegur 30-55%, má ekki fara yfir 60%. · Loftflæði þarf að vera stöðugt og loftskipti regluleg. Opna glugga reglulega og nota eldhúsviftur eða aðrar viftur sem soga loftið út. · Þurrkari (sem er ekki með rakaþétti) skal ávallt blása út úr húsnæði. · Fylgjast þarf sérstaklega með gluggum þar sem rúðurnar ,,gráta” . · Mikilvægt er að fylgjast vel með fúgu og þéttiefnum í baðherbergjum. Myndband - Discovery Channel endilega skoðið þetta stutta myndband með því að smella hér. · Yfirlýsing frá American Academy of Environmental Medicine júní 2008
Leviticus 14:39-47—biblían sem söguleg heimild um myglu—skoðið krækju If the mildew reappears in the house after the stones have been torn out and the house scraped and plastered, the priest is to go and examine it and, if the mildew has spread in the house, it is a destructive mildew; the house is unclean. It must be torn down-its stones, timbers and all the plaster-and taken out of the town to an unclean place (Vayikra / Leviticus 14:43-45). Hérna eru fréttir frá Finnlandi um myglusveppi:
Það er almennt viðurkennt að bakteríur og sveppir hafa áhrif á heilsufar fólks. Rannsóknir á þessu sviði eru flestar yngri en tíu ára og því margt sem á eftir að koma betur í ljós á komandi árum. Myglusveppir og sumar tegundir örvera sem þrífast í raka geta haft áhrif á heilsu með eftirfarandi hætti: margar tegundir geta valdið beinum sýkingum, ofnæmi eða óþol getur gert vart við sig og síðast en ekki síst er það áreiti vegna efna og efnasambanda sem hafa neikvæð áhrif á inniloft sem er andað að sér. Rannsóknir eru nýjar á þessu stigi eins og áður hefur verið minnst á, en gefa til kynna að tengsl séu á milli raka í húsnæði og heilsufars. Myglusveppir eru mikilvægir í náttúrunni. Utandyra er eðlilegt að myglusveppir séu í vexti enda eru þeir þar í sínu náttúrulega umhverfi þar sem ríkir samkeppni og eru þeir afar mikilvægir þar sem niðurbrot á sér stað. Gró myglusveppa eru til staðar í lofti utandyra og berast inn í híbýli með lofti, lifandi verum og vindum. Eðlilegt er að finna gró myglusveppa innandyra (30% m.v. loft utandyra). Myglusveppir eiga ekki að vera í vexti eða grómyndandi innandyra í híbýlum. Myglusveppir eru í vexti í þeim híbýlum þar sem kjöraðstæður til vaxtar hafa myndast. Þessar kjöraðstæður eru t.d. raki og æti. Gró myglusveppa ná því aðeins að vaxa þar sem umhverfið er þeim hagstætt innandyra. Það er við þessar aðstæður sem myglusveppir geta haft áhrif á heilsu þeirra sem búa í nágrenni þeirra. Myglusveppir gefa frá sér gró og aðra sveppahluta sem hafa áhrif á gæði innilofts í húsnæði þar sem rakavandamál er viðvarandi. Sýnt hefur verið fram á að gró og aðrir svepphlutar innihalda eiturefni (mycotoxin) og mótefnavaka. Samkvæmt niðurstöðum rannsókna mynda myglusveppir mVOC (microbial volitale organic compound) og margir mynda eiturefni sem verða til vegna annars stigs efnaskipta. Það fer eftir tegund, stofni og aðstæðum í hverju tilfelli hvort eða hversu mikið af eiturefnum eru framleidd. Við höfum fyrir löngu áttað okkur á þeirri hættu sem líkama okkar getur stafað af því að leggja okkur til munns þá villtu sveppi sem vaxa úti í náttúrunni. Við vitum að þeir eru margir eitraðir. Myglusveppir eru hins vegar oftast smáir og sakleysislegir og það er ekki fyrr en á allra síðustu árum, að vísindamenn og læknar hafa rannsakað þessa gerð sveppa og þau eiturefni sem þeir mynda og áhrif þessara eiturefna á heilsu manna. Rannsóknir hafa einkum farið fram á húsdýrum sem éta myglað fóður og skoðuð heilsufarsleg áhrif eins og á mjólkandi kýr sem lifa í húsnæði þar sem mygla vex. Rannsóknir hafa bent til þess að upptaka eiturefna í lungnavef sé margföld á við upptöku í meltingarvegi. Þess vegna hlýtur að vera afar erfitt að finna hversu mikið magn lífrænna eiturefna þarf hverju sinni til vekja einkenni, þó að það séu til viðmiðunarmörk á eiturefnum sem eru tekin upp í meltingarvegi. Því miður er ekki ennþá hægt að sýna fram á hversu mikið magn eiturefna(mycotoxina) þarf til að hafa áhrif á heilsufar einstaklinga. Það er afar erfitt að finna einhver ákveðin viðmiðunarmörk þar sem arfgerð einstaklinga spilar stórt hlutverk í því hversu auðveldlega eða fljótt líkaminn losar sig við eiturefni hverju sinni. Rannsóknir benda til þess að einstaklingar í ákveðnum vefjaflokkum séu viðkvæmari fyrir þessum eiturefnum en aðrir. Þess vegna sýna íbúar húsnæðis ekki alltaf sömu einkenni hverju sinni nema kannski þar sem erfðafræðileg tengsl eru fyrir hendi. Einkenni geta jafnvel verið afar mismunandi á milli fjölskyldumeðlima sem búa í sama húsnæði. Það er algengt að þar sem myglusveppur er í vexti finni aðeins hluti af íbúum eða starfsmönnum til óþæginda. Þar sem einkenni eru almenn og ansi víðtæk eiga þau það samt sem áður sameiginlegt að þau minnka eða hverfa þegar ákveðið húsnæði er yfirgefið. Það er margt sem getur haft neikvæð áhrif á loftgæði innandyra og því mikilvægt að finna ástæðuna. Blaut og rök byggingarefni eins og til dæmis lím, steypa og fúgur gefa einnig frá sér efni sem hafa neikvæð áhrif á loftgæði innandyra. Rannsóknir hafa sýnt fram á tengsl á milli þess að búa þar sem raki er viðvarandi og heilsufars. Sterkustu tengsl eru á milli raka í húsnæði og astma, öndunarfæraeinkenna og svefntruflana þar sem raki er viðvarandi í gólfi. Raki í steyptu gólfi getur valdið niðurbroti efna í steypu, gólfefnum og límum sem hefur neikvæð áhrif á gæði innilofts. Þar sem raki er í steyptu gólfi er algengara að íbúar finni til einkenna í nefholi og hálsi en þar sem raki er ekki til staðar. Einkenni sem gea komið fram eru talin pp hér..
Skoðið hugmynd Dr. Ritchie Shoemaker um ferli lífrænna eiturefna í líkamanum og víðtæk áhrif, sem er byggð á rannsóknum hans á nokkur þúsund sjúklingum Heimasíða rannsóknarseturs Dr. Ritchie Shoemakerst sensitivity test— VCS er sértækt sjónpróf |