


|
|
|
|

|
Hús og heilsa er fyrirtæki sem er stofnað til þess að vekja fólk til umhugsunar um áhættuna sem stafar af því að búa í híbýlum þar sem er viðvarandi raki. Stofnandi og starfmaður húss og heilsu er með B.Sc próf Í líffræði frá Háskóla Íslands, og er þar að auki að sérmennta sig í rannsóknum og hreinsun á myglusveppum. Stofnendur fyrirtækisins hafa sjálfir upplifað áhrif þess að búa í húsnæði þar sem er mikið magn af myglusveppum og viðvarandi raki. Þegar fjölskyldan hafði gert sér grein fyrir því hver væri ástæða síendurtekinna veikinda meðal fjölskyldumeðlima var hvergi aðstoð eða upplýsingar að fá hér á Íslandi. Hvergi var boðið upp á sýnatöku, greiningu sýna, úrvinnslu gagna, leiðbeiningar um úrræði í sambandi við húsnæði, né heldur var nokkra hjálp né upplýsingar að fá hjá heilbrigðiskerfinu (2004). Þetta vandamál er raunverulegt og er brýn nauðsyn að opna upplýsinga vefsíðu fyrir rannsóknir og niðurstöður sem fjalla um myglusveppi og raka í húsnæði. Fjölskyldan sem stofnar þetta fyrirtæki hefur reynt hversu erfitt það er að standa einn í þessum málum. Við misstum allar okkar veraldlegu eigur og heilsuna að einhverju leyti. VIð höfum reynt hversu erfitt er að vera með langveik börn og á sífelldum flótta undan því sem veldur einkennum. Við höfum þurft að finna út sjálf hvað hentar fólki með þessi veikindi. Okkur finnst óþarfi að allir þurfi að ganga í gegnum það sama og við. Við fjölskyldan ákváðum að stofna fyrirtæki sem gæti hjálpað fólki í þessari aðstöðu. Tekið sýni, hreinsað, gefið leiðbeiningar og bent á læknisfræðileg úrræði. Nauðsynlegt er að kynna áhrif lífrænna eiturefna (biotoxina) fyrir almenningi og öðrum sem tengjast heilbrigðiskerfinu á Íslandi. Hús og heilsa fjallar um þessi eituráhrif út frá eigin reynslu og annarra. Á þessari heimsíðu eru nýjar rannsóknir kynntar sem eru viðurkenndar í vísindaheiminum.
|

